Rakel hjólaði 100 km fyrir Hugarafl
12.04.25
Það var rífandi stemmning í Síðumúlanum í dag þegar Rakel Björk hjólaði 100 kílómetra á rétt rúmlega þremur og hálfum tíma.
Tæplega 100 manns lögðu leið sína í Hugarafl til að heilsa upp á Rakel, hlusta á ljúfa tóna og njóta samveru.
Vel lukkaður dagur með frábæru fólki, takk öll fyrir komuna og takk kærlega fyrir allan stuðninginn.
Áfram Hugarafl!
1 / 10



