Hugarafl hlýtur veglegan styrk frá frá Styrktar- og líknarsjóði Oddfellow
Gleðin var við völd í Hugarafli í dag.
06.05.25

Hugarafl fékk góða heimsókn í dag og hlaut veglegan styrk frá frá Styrktar- og líknarsjóði Oddfellow. Fyrir hönd Oddfellow komu Heiðar Friðjónsson formaður StLO, Guðmundur Eiríksson Stórsír Oddfellowreglunnar, Berþór Guðmundsson ritari StLO og Jóhannes B. Sigurðsson. Stjórn og starfsmenn tóku á móti styrknum við notalega athöfn.
Við í Hugarafli erum Oddfellow innilega þakklát og þessi rausnarlega viðurkenning setur ferskan blæ inn í starfið okkar og er ómetanleg. Við tilefnið átti sér stað fallegt samtal um starf beggja þessara samtaka sem leggja áherslu á að styðja sitt samfélag og gefa af sér.






