Hearing Voices dagur í Hugarafli

02.06.25

Í dag fór fram fræðsludagur Hearing Voices Iceland samtakanna í húsakynnum Hugarafls.

Hearing Voices samtökin voru stofnuð af þeim Fanneyju Björk Ingólfsdóttur, Auði Axelsdóttur og Svövu Arnardóttur árið 2019 og þau eru hluti af Intervoice network.

Jafningjahópur á vegum samtakanna var rekinn í Hugarafli um tíma og ýmislegt gert til þess að vekja athygli á þeirri nálgun sem samtökin starfa eftir. Hearing voices samtökin líta svo á að það að heyra raddir eða vera með aðrar óhefbundnar skynjanir sé hluti af mannlegum fjölbreytileika og styðja við einstaklinga sem hafa þessa skynjanir og berjast fyrir bættum mannréttindum þessa hóps.

Starfsemi samtakanna lá niðri á meðan á Covid faraldrinum stóð en nú hefur verið blásið lífi í þau aftur og var fræðsludagurinn til þess að vekja athygli á því. Vel var mætt á viðburðinn og dagskráin stórglæsileg.

Fanney Björk Ingólfsdóttir, formaður samtakanna, fór yfir sögu og hugmyndafræði Hearing voices samtakanna. Hún fór einnig yfir sögu Hearing voices Iceland samtakanna og þá vinnu sem þau hafa unnið hér á landi.

Ólafía Daníelsdóttir og Ari Tryggvason voru með kynningu á Maastricht spurningalistanum. Þau fengu núna í vor afhent réttindi til þess að nota hann í vinnu með skjólstæðingum sem heyra raddir. Þau hlutu þjálfun í Danmörku undir leiðsögn Trevor Eyles sem er brautryðjandi í því að vinna með einstaklingum með óhefðbundnar upplifanir á ósjúkdómsvæddan hátt. Listinn er aðferð sem vinnur með það að einstaklingurinn skilji betur upplifanir sínar og geti unnið með þær í stað þess að reyna að bæla þær niður.

Grétar Björnsson félagsfræðingur var með kynningu á fyrstu félagsfræðilegu rannsókninni á Íslandi á upplifun fólks sem heyrir raddir og/eða er með skynjanir sem flest okkur önnur erum ekki með. Rannsóknin var lokaverkefni hans til MA gráðu í félagsfræði og var tilgangur hennar að ræða við meðlimi Hearing voices Iceland sem og önnur sem ekki voru í félaginu og athuga hvort viðhorf til og viðbrögð við þessum óhefðbundnu upplifunum væru ólík.

Í kringum fyrirlestrana spunnust síðan líflegar umræður og það var gleðilegt að sjá hvað gestir voru áhugasamir um samtökin, veruleikann sem fólk sem er með óhefðbundnar upplifanir býr við og mannréttindi þeirra.

Að loknum fræðsludeginum var haldinn aðaðlfundur samtakanna og ný og öflug stjórn kjörin.

Í henni sitja nú:

  • Fanney Björk Ingólfsdóttir

  • Ólafía Daníelsdóttir

  • Guðjón Helenuson

  • Málfríður Hrund Einarsdóttir

  • Anton Smári Gunnarsson

  • Sigrún Huld Sigrúnar

  • Grétar Björnsson

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar