Alina Elo iðjuþjálfanemi kvödd

Það var líf og fjör á Hugaraflsfundi í dag þar sem mörg og mikilvæg málefni voru rædd.

28.05.25

Glæsilegar veitingar voru á boðstólum í tilefni þess að við kvöddum formlega Alinu Elo, finnskan iðjuþjálfanema sem hefur verið hjá okkur í verknámi undanfarna 3 mánuði.

Alina var kvödd með gjöf frá félaginu og svo fórum við hringinn og kvöddum hana með fallegum orðum. Alina kom inn í húsið okkar með ferskan andblæ, hlýja nærveru og stórt bros og við munum svo sannarlega sakna hennar. Við óskum Alinu góðs gengis í framtíðinni og hlökkum til að sjá hvað hún tekur sér fyrir hendur.

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar