Skip to main content
Fréttir

„Þeir eru að leika sér með mannslíf hérna“

By apríl 4, 2017No Comments

Gunnar Hrafn segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar eins og blauta tusku í andlitið. MYND: HEIÐA HELGADÓTTIR

Gunnar Hrafn Jónsson, þingmaður Pírata, var harðorður í garð Óttars Proppé heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag þegar hann gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir áherslur sínar í geðheilbrigðismálum. Velferðarráðuneytið skar nýverið niður framlög til Hugarafls um 80 prósent.

Gunnar Hrafn Jónsson, þingmaður Pírata, gagnrýndi Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra harðlega á Alþingi í dag fyrir að skerða fjárframlög til samtakanna Hugarafls. Hann sagðist sjálfur hafa nýtt sér þjónustu Hugarafls og að hann væri ekki viss um hvort hann stæði hér í dag ef þeirra nyti ekki við. Gunnar Hrafn hefur verið mjög opinskár um sín veikindi og sagði meðal annars frá þeim í viðtali á Stundinni.

Gunnar Hrafn byrjaði ræðuna sína á því afsaka sig, hann þyrfti að skreppa út úr húsi klukkan tvö, af brýnni nauðsyn, til þess að mótmæla fyrir utan velferðarráðuneytið. „Það eru mótmæli af því að nú þegar er farið að bera á því að ríkisstjórnin sé að svíkja þau loforð og þau fyrirheit sem hún gaf um að bregðast við því neyðarástandi sem ríkir í málum fólks með geðraskanir á Íslandi,“ sagði hann.

„Þetta er algjör svívirða.“

Gunnar Hrafn sagðist sjálfur þekkja það af eigin raun að búið sé að marglofa fjölbreyttari og hagkvæmari úrræðum sem eigi að nýtast sem flestum. „Nú fáum við það sem blauta tusku í andlitið að hæstvirtur heilbrigðisráðherra, Óttarr Proppé, ætlar að skaffa samtökunum Hugarafli, sem hafa unnið áralangt og gott starf — meðal annars aðstoðað mig, ég veit ekki hvort ég stæði hér í dag ef þeirra nyti ekki við — rétt rúm mánaðarlaun þingmanns til að sinna sínum tæplega 200 skjólstæðingum út heilt ár. Ég er satt að segja brjálaður yfir þessu. Þau rétt skrimtu í gegnum síðasta ár með átta milljónir, nú á að bjóða þeim 1,5 milljónir til að vinna sitt starf. Það þýðir bara að starfsemin leggst í raun og veru af.“

Þá krafðist hann þess að menn gerðu sér grein fyrir því að þeir væru að leika sér með mannslíf hérna. „Það eru engin önnur úrræði fyrir þetta fólk, það eru engin önnur úrræði sem eru ódýrari. Þetta er ódýrasta úrræðið sem við höfum, annars endar þetta fólk inni í heilbrigðiskerfinu, sem er margfalt dýrara. Ég krefst þess að við fáum í staðinn árslaun þingmanns, 13 milljónir, til að reka þetta úrræði í ár og helst eitthvað meira á næsta ári. Þetta er algjör svívirða,“ sagði Gunnar Hrafn.

Vanvirðing við einstaklinga með geðraskanir

Hugarafl sendi þingmönnum bréf þann 30. mars síðastliðinn þar sem krafist var skýringa á skerðingu fjárframlaga til samtakanna. „Með núverandi framlagi velferðarráðuneytis er hér verið að skerða framlög ráðuneytisins til Hugarafls um 80 prósent frá fyrra ári og krefst það skýringa. Hvaða skilaboð eru gefin hér samtökum sem sinna gríðarlega stóru hlutverki í íslensku geðheilbrigðiskerfi? Hvernig er hér komið fram við einstaklinga með geðraskanir? Hugarafl er stærsta úrræðið fyrir geðsjúka utan stofnana á Íslandi og sækja 177 manns þjónustu mánaðarlega. Hugarafl hefur sérhæft sig í valdeflingu og batamódeli og verið brautryðjandi í íslensku geðheilbrigðiskerfi í þekkingu og reynslu á því sviði,“ segir meðal annars í bréfi samtakanna.

„Samtal þarf að eiga sér stað nú þegar.“

Þá segir að Hugaraflsmenn líti á útspil stjórnvalda sem verulega vanvirðingu við einstaklinga sem glíma við geðraskanir. „Samkvæmt áformum nýrrar ríkisstjórnar í þessum málaflokki stendur til að efla þjónustu við þennan hóp. Að því sögðu eru viðbrögð stjórnvalda gagnvart Hugarafli til skammar og verður á engan hátt við unað. Samtal þarf að eiga sér stað nú þegar og hér með er óskað eftir því við alla þá þingmenn og ráðherra sem láta sig málaflokkinn varða með sjálfsögð mannréttindi og virðingu að leiðarljósi.“
Grein birtist upphaflega á stundin.is