Skip to main content
Fréttir

Skráning á HAM námskeið hafin

By janúar 19, 2016janúar 24th, 2019No Comments

Febrúar 2016
Þriðjudaginn 9. febrúar mun Pétur Hauksson geðlæknir hefja nýtt námskeið í Hugrænni atferlismeðferð (HAM) í Hugarafli.   Alls er um að ræða 12 skipti og hópurinn hittist á þriðjudögum klukkan 15:00.- 16:00.  Námskeiðsgjald er kr 18.000  sem hægt er er að skipta í 3 mánaðarlegar greiðslur.  Öll  námskeiðsgögn eru innifalin í verði.   Hægt er að skrá sig á námskeiðið í Hugarafli, Borgartúni 22.

Hugræn atferlismeðferð  hefur náð mikilli útbreiðslu undanfarin ár í tengslum við ýmsan heilsuvanda, en þó einkum þunglyndi og kvíða. Rannsóknir sýna að HAM er gagnleg aðferð til að ná og viðhalda bata.  Við hvetjum alla þá sem áhuga hafa á að taka þátt í námskeiðinu til að skrá sig sem fyrst.