Við verðum aftur með Hugarró með Hugarafli á föstudaginn
Við fengum frábærar viðtökur í síðustu viku þegar við buðum upp á afslappað samtal við Auði Axelsdóttur iðjuþjálfa, sem er ein af stofnendum Hugarafls.
Í þessari viku ætlum við því að halda ótrauð áfram og bjóðum nú upp á opið samtal við Braga Reyni Sæmundsson sálfræðing í Hugarafli. Það getur hjálpað að ræða málin og styðja hvort annað við að komast í gegnum þetta tímabil saman.
Við munum senda beint út hér á facebook, föstudaginn 3. apríl kl. 11, og svara spurningum ykkar. Hér gefst tækifæri til að senda inn spurningar, leita lausna eða tala um það sem ykkur liggur á hjarta.
Við erum hér ♥
Sjá viðburð;
https://www.facebook.com/events/516463282563392/