Skip to main content
FjarfundirFréttir

Hugarró Hugarafls í opnu streymi föstudaginn 24.apríl kl.11:00.

By apríl 23, 2020No Comments

Hvað liggur þér á hjarta í tengslum við geðið, tilfinningar og almenna líðan á þessum tímum? Það getur skipt sköpum að ræða málin og þannig getum við stutt hvert annað við að komast í gegnum þetta tímabil saman.

Við í Hugarafli höfum boðið íslensku samfélagi upp á afslappað samtal um geðheilsu, tilfinningar og önnur tengd málefni á föstudögum kl. 11 fjórar vikur í röð og höldum ótrauð áfram í þessari viku.

Við munum senda beint út hér á facebook, föstudaginn 24. apríl kl. 11, þar sem Málfríður Hrund Einarsdóttir formaður Hugarafls og ráðgjafi mun leitast við að svara spurningum ykkar. Hér gefst tækifæri til að senda inn spurningar, leita lausna eða tala um það sem ykkur liggur á hjarta.

Við erum hér ♥