Skip to main content
FjarfundirFréttir

Fanney og Svava með Hugarró á föstudaginn

Hugarró – opið streymi er vikulegur líður okkar í Hugarafli þar sem félagsmenn og vinir hafa verið með opið samtal með samfélaginu 8 vikur í röð!

Um viðburðinn:

Hvað liggur þér á hjarta í tengslum við geðið, tilfinningar og almenna líðan á þessum tímum? Það getur skipt sköpum að ræða málin og þannig getum við stutt hvert annað við að komast í gegnum þetta tímabil saman.

Við í Hugarafli höfum boðið íslensku samfélagi upp á afslappað samtal um geðheilsu, tilfinningar og önnur tengd málefni á föstudögum kl. 11 átta vikur í röð og höldum ótrauð áfram í þessari viku.

Við munum senda beint út á facebooksíðu Hugarafls, föstudaginn 22. maí kl. 11, þar sem Fanney Björk Ingólfsdóttir og Svava Arnardóttir Hugaraflsfélagar munu leitast við að svara spurningum ykkar. Fanney og Svava eru báðar með persónulega reynslu af andlegum áskorunum, sitja í stjórn Hearing Voices Iceland og leiða jafningjahóp fyrir fólk sem heyrir raddir, sér sýnir eða lifir með öðrum tengdum upplifunum. Fanney er einnig í stjórn Hugarafls og með BA gráðu í sálfræði. Svava starfar sem iðjuþjálfi hjá Hugarafli.

Hér gefst tækifæri til að senda inn spurningar, leita lausna eða tala um það sem ykkur liggur á hjarta.

Við erum hér ♥

https://www.facebook.com/Hugarafl/