Skip to main content
FjarfundirFréttir

Agla Hjörvarsdóttir býður heim – beint streymi

Heimsókn til Hugaraflsfélaga viðburðarserían heldur ótrauð áfram og að þessu sinni býður Agla okkar í heimsókn. Agla ætlar að flytja nokkur lög en hún er þekkt fyrir ljúfa tóna og virkilega fallegann söng <3

Heimsóknin verður sýnd í beinni útsendingu á likesíðu Hugarafls á Facebook; https://www.facebook.com/Hugarafl/

Um viðburðinn:

Langar þig að kíkja í heimsókn til Hugaraflsfélaga?

Staðan í samfélaginu hefur takmarkað ferðir okkar og breytt leiðum til að halda í þýðingarrík tengsl og samskipti. Við í Hugarafli búum svo vel að eiga fjölda hæfileikaríkra félaga sem eru reiðubúin til að bjóða alþjóð í rafræna heimsókn. Hugmyndin er að veita smá krydd í tilveruna með tónlist, söng, handverki eða annarri sköpun.

Við munum senda út í beinu streymi á likesíðu Hugarafls þriðjudaginn 26. maí kl. 14 og reikna má með að heimsóknin vari í tæpan hálftíma.

Í þetta skiptið býður Agla Hjörvarsdóttir Hugaraflsfélagi ykkur í heimsókn en henni langar að syngja og spila ljúfa tóna.