Skip to main content
Fréttir

Aðalfundur Hugarafls

Aðalfundur Hugarafls verður haldinn miðvikudaginn 18. júní nk., klukkan 13:00 – 15:00 í húsakynnum Hugarafls, Síðumúla 6, á annarri hæð.  

Á fundinum verður kosið til framkvæmdastjórnar Hugarafls. Óskað er eftir framboðum fyrir setu í framkvæmdastjórn Hugarafls, til stjórnarmanna og varamanna, og verða framboðin að berast fyrir aðalfundinn. Þau sem vilja bjóða sig fram þurfa að hafa verið gildir Hugaraflsfélagar í minnst eitt ár og þekkja vel til hugmyndafræðinnar og innviði starfsins, samkvæmt lögum Hugarafls. Framboð skulu berast í tölvupósti á netfangið hugarafl@hugarafl.is eða í síðasta lagi fyrir upphaf aðalfundar.  

Lagabreytingar sem lagðar eru fyrir er að finna hér með fundarboði, sbr. hlekk hér að neðan. 

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum Hugarafls. 

Dagskrá aðalfundar: 

  1. Ávarp formanns, aðalfundur settur
  2. Staðfest skipan fundarstjóra, fundarritara og tveggja atkvæðateljara
  3. Staðfest lögmæti aðalfundarboðs
  4. Skýrsla stjórnar
  5. Ársreikningur síðasta árs kynntur og borinn upp til samþykktar
  6. Lagabreytingar
  7. Kosning framkvæmdastjórnar
  8. Önnur mál
  9. Fundarslit 

Sjá má tillögur að lögum hér:

Lagabreytingar 2025