Skip to main content
Fréttir

Þakklæti efst í huga eftir frábært Reykjavíkurmaraþon

By ágúst 22, 2016No Comments

Sólin brosti sínu breiðasta á laugardaginn og Reykvíkingar fjölmenntu út á götur borgarinnar.  Margir tóku daginn eldsnemma, reimdu á sig hlaupaskónna og skelltu sér í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.  Aðrir mættu til þess að hvetja hlauparanna til dáða með klappi og köllum.  Hugaraflsfólk og velunnarar létu sig ekki vanta þennan fallega morgun og stóðu sig allir með miklum sóma hvar sem þeir komu.

Hugarafl vill nota tækifærið og þakka öllu okkar frábæra fólki, velunnurum og styrkjendum fyrir ómetanlegan stuðning.  Til hamingju öll sömul 🙂