Samherja verkefnið gengur út á persónulegt spjall milli tveggja einstaklinga sem þekkja geðræn vandamál. Samherjinn hefur sjálfur reynslu af því að hafa átt við geðræna erfiðleika að stríða en er í góðum bata og vill láta gott af sér leiða.
Samherji tekur tillit til þess að einstaklingar eru í misjöfnu ástandi og mætir hverjum og einum þar sem hann er staddur. Í vissum tilvikum hlustar hann bara og sýnir skilning. Í öðrum tilfellum segir hann frá sinni eigin sögu og hvaða úrræði hafa nýst honum í baráttunni við geðsjúkdóma. Einnig talar Samherji um sín viðhorf og þá fordóma sem hann hefur þurft að takast á við, bæði persónulega og samfélagslega. Þetta er þjónusta á persónulegu plani sem allir þeir sem eru með geðsjúkdóma geta nýtt sér. Ef viðkomandi óskar eftir því að fá að hitta samherja oftar en einu sinn þá er það ekkert mál. Sem sagt í stuttu máli þá er Samherjinn sveigjanlegur og aðlagar sig að þeim einstakling sem hann er að tala við.
Samherja verkefnið gengur út á eftirfarandi:
· Að benda á að það sé von.
· Að bati er raunverulegt markmið.
· Að sigrast á fordómum.
· Að benda á úrræði og lausnir.
· Að vera fyrirmynd.
Hafið eftirfarandi í huga!
Ø Þetta er ókeypis þjónusta.
Ø Þú hefur engu að tapa að hitta Samherja!
Ø Þú hefur allt að græða á því að hitta Samherja!
Ø Í versta falli segir þú við sjálfan þig, þetta á ekki við mig.