Skip to main content
FjarfundirFréttir

Saman í blíðu og stríðu – Hugarró á föstudag

By september 29, 2020No Comments

Saman í blíðu og stríðu – Hugarró með Grétari Björnssyni og Þóru Gylfadóttur

Hugarró Hugarafls heldur áfram göngu sinni þar sem við bjóðum upp á vikuleg streymi af likesíðu Hugarafls! Öll áhugasöm eru hvött til að taka þátt.
Föstudaginn 2. október kl. 11-12 munu Grétar Björnsson og Þóra Gylfadóttir Hugaraflsmæðgin ræða veikindi og erfiðleika, batann og stuðninginn, og hvernig þau standa saman í blíðu og stríðu.
Grétar segir frá eigin persónulegu reynslu og bata af andlegum áskorunum og Þóra frá því sem hún hefur lært af því að vera aðstandandi.
Hér gefst tækifæri til að senda inn spurningar, leita lausna eða tala um það sem ykkur liggur á hjarta. Samtalið er opið og á ykkar forsendum.
Við verðum í beinni á likesíðu Hugarafls, sjá hér: https://www.facebook.com/Hugarafl