Skip to main content
Fréttir

Nýliðadagar hjá Hugarafli vikuna 16.-20.september

By september 11, 2013No Comments

Ágætu nýliðar!

Við bjóðum hér með nýliða velkomna til að kynna sér starfssemi Hugarafls vikuna 16.-20. september. Boðið verður upp á þétta og fræðandi dagskrá alla vikunnar kl.13.00-15.00 og nýliðar beðnir að mæta alla dagana. Boðið verður uppá kaffi og hressingu í hléi kl.14.00.

Markmiðið með nýliðavikunni er að gestir fái góða yfirsýn yfir okkar starf og þá möguleika sem í boði eru fyrir hvern og einn til að vinna með í sínu bataferli. Í framhaldinu eru áhugasamir velkomnir að ganga til liðs við hópinn og taka virkan þátt í starfinu.

Dagskrá:

Mánudagur ; Valdefling og bati

Þriðjudagur; Samskipti

Miðvikudagur; Uppskrift að góðu sambandi

Fimmtudagur; Dagskrá Hugarafls, Batafulltrúi og reynslusaga

Föstudagur; Kynning á jóga, meðvirknigrúppu og hugleiðslu

Hlökkum til að sjá ykkur!