Skip to main content
Greinar

„Ég er trúður sem er læknir, ekki læknir sem er trúður“

By júlí 30, 2013No Comments

„Ég er trúður sem er læknir, ekki læknir sem er trúður“

„Lengsta faðmlagið varaði í tólf tíma,“ segir Adams, sem notar faðmlög og snertingu mikið í sínu starfi sem læknir.      

„Lengsta faðmlagið varaði í tólf tíma,“ segir Adams, sem notar faðmlög og snertingu mikið í sínu starfi sem læknir.         — Morgunblaðið/Eggert
Litríki læknirinn Patch Adams hefur snert hjörtu víða um heim en hann helgar líf sitt umhyggju fyrir náunganum, ver fjórum tímum með hverjum sjúklingi og hefur aldrei ávísað geðlyfjm. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Það er óhætt að fullyrða að bandaríski læknirinn, trúðurinn og hugsjónamaðurinn Patch Adams er ekki eins og fólk er flest. Hann ferðast um heiminn 300 daga á ári og hefur gert í bráðum 30 ár. Á ferðum sínum breiðir hann út boðskap sinn um umhyggju og gleði. Adams, sem er á sjötugsaldri, er með grátt og blátt hár í síðu tagli langt niður á bak. Hann klæðir sig dags daglega eins og trúður. Í vasa hans má svo finna eldrautt trúðsnef sem hann skellur reglulega á sig og gleður bæði börn og fullorðinna. Árið 1998 lék Robin Williams Patch Adams í samnefndri kvikmynd en hún fjallaði um líf hans og störf.Adams var staddur hér á landi í síðustu viku í boði Hugarafls, félagasamtaka geðsjúkra, en þau eiga tíu ára afmæli um þessar mundir. Hann hélt bæði námskeið hér og fyrirlestur og greinilegt er að hann á sér fylgjendur hér á landi, sem annars staðar. Hann lýsti fyrir fullum sal Þjóðleikhússins upphafinu af sínu hugjónastarfi, en hann byrjaði í læknisfræði árið 1967. Þegar hann útskrifaðist nokkrum árum síðar, ákvað hann strax að hann gæti aldrei starfað sem hefðbundinn læknir en hann hefur aldrei viljað nota geðlyf til lækninga.

Húsið stóð opið í tólf ár

Hann opnaði heimili sitt sjúklingum á áttunda áratugnum þar sem hann bjó í kommúnu. Að jafnaði komu 500-1000 sjúklingar þar í hverjum mánuði, og allt frá fimm upp í fimmtíu gistu þar á hverri nóttu. „Það var ekkert einkalíf, það má segja að það hafi verið þröng á þingi. Ég svaf ekki mikið á þessum árum, kannski nokkra tíma á nóttu, ég vildi ekki missa af neinu,“ segir Adams, en þetta heimili stóð opið í tólf ár.

 

Gefur sér tíma með sjúklingum

Adams hefur enga trú á bandaríska heilbrigðiskerfinu og segir tryggingakerfið þar „rotið“. Hann lýsir því að hinn dæmigerði læknir eyði 7,8 mínútum í sjúkling við fyrstu heimsókn, en hann aldrei minna en fjórum tímum. „Lengsta faðmlagið varaði í tólf tíma,“ segir hann og hlær. Hann segist aldrei hafa tekið krónu fyrir sjálfan sig við læknisstörf sín, heldur noti hann peninga sem hann fær fyrir fyrirlestra sína til að hjálpa fólki út um allan heim, oft með því að byggja skóla í fátækum þorpum.

 

Trúðurinn stöðvar ofbeldi

Adams, sem er alltaf klæddur víðum skræpóttum buxum, litríkum skyrtum og sjálflýsandi strigaskóm, segir ástæðu fyrir þessum klæðaburði. Hann reynir alltaf að nálgast fólk sem hann hittir og fötin hjálpa til við að brjóta ísinn. Hann hefur margsinnis notað klæðnaðinn og trúðshátt til að stöðva ofbeldi sem hann hefur séð víða. Hann segir auðvelt að stöðva slagsmál því fólk verður yfirleitt svo agndofa yfir þessum undarlega manni. „Ég er trúður sem er læknir, ekki læknir sem er trúður,“ segir hann.

 

Sjö ástæður fyrir því að hjálpa öðrum

Allt hans líf hefur snúist um umhyggju fyrir öðrum og að hjálpa þeim sem þjást. Hann nefnir sjö ástæður fyrir því hvers vegna hann tileinki lífi sínu velferð annarra. Í fyrsta lagi segist hann hreinlega elska fólk. Hann segist eiga leyndan draum um að festast í lyftu milli hæða með fólki sem ekki þolir hvort annað, helst í marga klukkutíma. „Það er svona mikið sem ég elska fólk!“ segir Adams. Í öðru lagi er honum mjög umhugað um framtíð mannkyns og sjálfur er hann ekki viss um að það lifi af öldina. „Allt væri öðruvísi ef fólk sýndi ást og umhyggju,“ segir hann. „Ég vil framtíð þar sem fólk þarf að fletta upp orðinu stríð, af því það veit ekki hvað það þýðir,“ segir hann. Í þriðja lagi telur hann það skyldu hvers manns að sýna umhyggju en fjórða ástæðan er sú að þú uppskerð eins og þú sáir. „Karma þýðir ekki að ef ég skutla þér á flugvöllinn í dag, þá skutlar þú mér á morgun, frekar að ef þú ert góð manneskja, þá færðu gott til baka.“ Í fimmta lagi segist hann fá tækifæri til að verða skapandi í að hjálpa fólki, og geta reynt að stöðva ofbeldi og hungur. Í sjötta lagi segist hann hafa möguleikann á að vera duglegur og metnaðarfullur í sínu starfi. „Maður þarf auðvitað að vera brjálaður, dreyma það sem er óhugsandi.“ Hann segir sjöundu ástæðu fyrir því að hann eyði ævi sinni í að hjálpa fólki vera að það sé vísindalega sannað að það gerir manni gott.

 

Hefur séð mikinn hrylling

Adams hefur séð sinn skerf af eymd og volæði en hann segist hafa setið á tíu þúsund dánarbeðum í gegnum árin. „Þið getið ekki ímyndað ykkur hryllinginn sem ég hef séð,“ segir hann klökkur, og mátti heyra saumnál detta. Hann lýsir einnig sögunni af því þegar besti vinur hans og læknir var drepinn með köldu blóði af geðveikum sjúklingi, en starf hans er ekki hættulaust.

 

Adams notar ekki tölvu og segist ekki kunna á slíkt tæki, en hann svarar öllum skrifuðum bréfum sem hann fær, allt upp í mörg hundruð á mánuði. Adams er um þessar mundir að byggja spítala í Vestur-Virginíuríki, sem á að veita ókeypis læknisþjónustu um leið og að sýna fram á að aðrar leiðir eru færar í heilbrigðiskerfi samfélagsins.

„Ekki komin niður á jörðina“

Á tíu ára afmæli Hugarafls, félagasamtaka geðsjúkra, er ýmislegt gert til að fagna. Stærsti viðburðurinn var koma Patch Adams til landsins að sögn Auðar Axelsdóttir, forstöðumanns Hugarafls. Adams, sem dvaldi aðeins í 26 tíma á landinu, náði að snerta marga Íslendinga, þar á meðal Auði. „Þetta var alveg meiriháttar, ég er ekki komin niður á jörðina. Hann gaf mér sem manneskju svo mikið, hann fer alla leið. Og sem fagmanneskju styrkti hann mig í þessari persónulegri nálgun og umhyggju,“ segir hún.

Valdefling

Hugarafl hefur unnið ötullega í áratug við að hjálpa geðsjúkum að komast aftur út í samfélagið á sínum forsendum. Einnig leggja þau mikla áherslu á að vinna með aðstandendum en samtökin lögðu upp með það frá byrjun að minnka fordóma og nota reynslu geðsjúkra til að vinna í bata þeirra. Hugarafl vill gjarnan hafa áhrif á það hvernig heilbrigðiskerfið á Íslandi virkar og vilja þau sjá meiri virðingu og efla mannréttindi geðsjúkra. Einkunnarorð þeirra er valdefling sem er þýðing á enska orðinu „empower- ment“.

Auður Axelsdóttir vill sjá breytingar í heilbrigðiskerfinu.

Vonast eftir stuðningi stjórnvalda

Auður, sem fékk viðtal við nýjan heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, strax daginn eftir fyrirlesturinn hjá Adams, bindur miklar vonir við nýja ríkisstjórn. Hún segir þau ekki fá nægilegt fjármagn og óskar eftir meiri stuðningi stjórnvalda. „Þessi nálgun okkar er mjög ódýr, og sparar heilbrigðiskerfið á öllum sviðum, sparar fjármagn, sársauka og þjónustu,“ segir hún og bætir við: „Við viljum fá meiri viðurkenningu.“