Skip to main content
FjarfundirFréttir

Hugarró – beint streymi

Hugarró – opið streymi er vikulegur líður okkar í Hugarafli þar sem félagsmenn og vinir hafa verið með opið samtal með samfélaginu 9 vikur í röð!

Samtalið við Bjarna veitti mikla hugarró fyrir rúmri viku síðan – og vegna góðra undirtekta höfum við ákveðið að taka upp þráðinn aftur!

Um viðburðinn:

Hvað liggur þér á hjarta í tengslum við geðið, tilfinningar og almenna líðan á þessum tímum? Það getur skipt sköpum að ræða málin og þannig getum við stutt hvert annað við að komast í gegnum þetta tímabil saman.

Við í Hugarafli höfum boðið íslensku samfélagi upp á afslappað samtal um geðheilsu, tilfinningar og önnur tengd málefni á föstudögum kl. 11 níu vikur í röð og höldum ótrauð áfram í þessari viku.

Við munum senda beint út á facebook, föstudaginn 29. maí kl. 11, þar sem Bjarni Karlsson, doktor í siðfræði og prestur við sálgæslustofuna Haf, mun leitast við að svara spurningum ykkar. Hér gefst tækifæri til að senda inn spurningar, leita lausna eða tala um það sem ykkur liggur á hjarta.

Við erum hér ♥

https://www.facebook.com/Hugarafl/