Skip to main content
FjarfundirFréttir

Bjarni Karlsson með Hugarró – beint streymi

Hugarró með Hugarafli- beint streymi á föstudaginn næsta! 

Hvað liggur þér á hjarta í tengslum við geðið, tilfinningar og almenna líðan á þessum tímum? Það getur skipt sköpum að ræða málin og þannig getum við stutt hvert annað við að komast í gegnum þetta tímabil saman.

Við í Hugarafli höfum boðið íslensku samfélagi upp á afslappað samtal um geðheilsu, tilfinningar og önnur tengd málefni á föstudögum kl. 11 sjö vikur í röð og höldum ótrauð áfram í þessari viku.

Við munum senda beint út á facebook, föstudaginn 15. maí kl. 11, þar sem Bjarni Karlsson, doktor í siðfræði og prestur við sálgæslustofuna Haf, mun leitast við að svara spurningum ykkar. Hér gefst tækifæri til að senda inn spurningar, leita lausna eða tala um það sem ykkur liggur á hjarta.

Við erum hér ♥

https://www.facebook.com/Hugarafl/