Skip to main content
Geðheilbrigðismál

Bestu lög Peter Gabriel og Genesis í Háskólabíói 28. febrúar

By febrúar 24, 2015No Comments

PeterGabriel-Genesis

Það er okkur mikil ánægja að segja ykkur frá tónleikum sem haldnir verða í Háskólabíói 28. febrúar. En Árni Steingrímsson, gítarleikari hljómsveitarinnar Hátveiro er einn þeirra sem hefur nýtt sér þjónustu Hugarafls.

Hljómsveitin Hátveiro hefur á undanförnum misserum getið sér gott orð fyrir flutning á tónlist Genesis. Nú ætlar hljómsveitin ásamt fjölda aðstoðarmanna að efna til mikillar tónlistarveislu þar sem bestu lög Peters Gabriel og Genesis verða flutt.
Fyrri hluti tónleikanna verður helgaður nokkrum af helstu verkum Genesis með Peter Gabriel sem forsöngvara. Lög á borð við Firth of fifth, Dancing with the moonlit knight, In the cage og The lamb lies down on Broadway. Seinni hluti tónleikanna er helgaður sólóferli Peters Gabriel en þar má finna smelli á borð við Don´t give up, Solsbury hill, In your eyes, Biko og Sledgehammer.

Einvalalið tónlistarmanna kemur fram á tónleikunum
Söngvarar: Þór Breiðfjörð, Jónína Aradóttir, Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir og Bjarni Þór.
Hljómsveit: Sigurður Guðni Karlsson – trommur og slagverk, Björn Erlingsson – bassi, Don Eddy – þverflauta, saxófónn, gítar og hljómborð, Árni Steingrímsson gítar, Jósep Gíslason – píanó og hljómborð, Jóhann Hjörleifsson – trommur og slagverk.
Hljóðstjórn: Jón Skuggi.

Hægt er að kaupa miða með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan:

http://midi.is/tonleikar/1/8683/Bestu_log_Genesis_og_Peter_Gabriel