Kakó- og vöffluilmur í hæfilegu hlutfalli við ilmandi grenilyktina tók á móti gestum sem gengu inn í Hugarafl sunnudaginn 13. desember. Fjölmargir lögðu leið sína til okkar og þáðu veitingar sem voru í boði. Og mikið var verslað af jólavarningi sem Hugaraflsfólk hefur verið að vinna að síðustu misserin. Við þökkum gestum kærlega fyrir innlitið og Hugaraflsfólki fyrir all þá vinnu sem lögð hefur verið á sig til þess að gera þetta að svo góðum degi.
Við minnum á að enn eru til jólakort, kransar, leiðis- og körfuskreytingar og lakkrís sem hægt er að kaupa í Hugarafli.